Sköpunargleði og hugmyndaauðgi - Myndir
Það vantar ekki sköpunargleðina og hugmyndaflugið þegar skreytingar á unglistahátíðinni Eldur í Húnaþingi eru annars vegar. Greinilegt er að Hvammstangabúar hafa tekið höndum saman og skreytt hverfið vel og vandlega í sínum einkennislitum.
Auk litanna má finna þemu í skreytingunum, svo sem jólaþema rauða hverfinu og sælgætisþema í bláa hverfinu.
Klukkan átján í dag verður svo Bangsatúnið þakið öllum hverfalitunum þegar íbúar hverfanna koma saman og reyna að hafa áhrif á niðurstöður dómara í keppninni um best skreytta hverfið. Á boðstólum hafa gjarnan verið kræsingar fagurlega skreyttar til hvers hverfis fyrir sig. Á laugardeginum verður svo uppljóstrað um vinningshafa í keppninni.
Blaðamaður Feykis tók rúnt um Hvammstanga í dag og myndaði skreytingar í bak og fyrir.
.