Skotfélagið Ósmann 30 ára

Aðstaða Skotfélagsins Ósmanns á Reykjaströnd. Myndir: Erlingur B. Jóhannesson.
Aðstaða Skotfélagsins Ósmanns á Reykjaströnd. Myndir: Erlingur B. Jóhannesson.

Skotfélagi Ósmann fagnar í dag 8. maí 30 ára afmæli sínu. Félagið hefur haldið upp á stórafmæli með einhverjum viðburði fram að þessu, en hefur ákveðið að taka hægt og hljótt á tímamótunum núna. Stærsti hluti starfseminnar í dag er rekstur skotvallarins og að gera góða aðstöðu betri fyrir alla félagsmenn, því að starfsemin snýst að langmestu leyti um þá.

Félagið hefur yfir að ráða skeet - og trap velli ásamt 200 metra riffilbraut. Aðstaða fyrir bogfimi er einnig til staðar. Félags- og kennsluhús er mjög gott og riffilhús með skotborðum og opnanlegum skotlúgum/gluggum. Skotvöllur félagsins er opinn fyrir alla sem hug hafa á að notfæra sér hann, enda mjög algengt að þeir sem leið eiga um Skagafjörð hafi samband varðandi afnot að aðstöðunni.

Skotvöllur Ósmanns er rós í hnappagat Skagafjarðar þegar horft er til þess hvað samfélagið hér býður upp á varðandi afþreyingu. Móttaka á skólahópum hefur til fjölda ára verið stór þáttur í starfsemi félagsins. Á því sviði var félagið frumkvöðull sem eftir var tekið og markaði braut sem vonandi fleiri félög fara inn á. Þar höfum við kynnt skotveiðar og skotíþróttir fyrir unga fólkinu sem munu erfa landið.

Þetta starf félagsins hefur nú þegar skilað sér varðandi aukna nýliðun í þessu sporti og örugglega í ábyrgari og öruggari meðferð þeirra tækja sem notuð eru til veiða og í íþróttaskotfimi.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir