Smali næsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar
Næsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar verður nk. laugardag, 22. febrúar. Að þessu sinni verður keppni í Smala og hefst hún kl. 14. Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins Þyts verður ekki keppt í skeiði fyrr en á lokamótinu þetta árið þar sem brautin okkar er ekki tilbúin.
Sameiginleg æfing allra liða verður á miðvikudagskvöldið nk. frá kl. 19:30, Þytur ætlar að bjóða upp á súpu og brauð fyrir alla sem mæta á æfinguna. „Hvetjum við aðra félaga til að mæta upp í höll og fá sér súpu og eiga skemmtilegt kvöld saman,“ segir á heimasíðunni.
Skráning er á netfang thytur1@gmail.com fyrir miðnætti fimmtudagskvöldsins 20. febrúar. Fram þarf að koma nafn og kennitala knapa, flokkur, hestur, IS númer, litur, aldur og hvaða liði keppandinn er. Skráningargjöld eru 1.500 kr í smala fyrir fullorðna en 1.000 fyrir unglinga. Greiða þarf skráningargjöld áður en mót hefst inná reikning Þyts 0159-15-200343 kt. 550180-0499.
Keppt verður í unglingaflokki (fædd 1997 og seinna), 3. flokki, 2. flokki og 1. flokki og fara 9 hestar brautina aftur ef 16 eða fleiri keppendur eru í flokki, annars fara 5 í úrslit.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Hestamannafélagsins Þyts.