Söfnuðu 114 þúsund krónum fyrir Barnahjálp ABC
feykir.is
Skagafjörður
22.04.2014
kl. 14.48
Rétt fyrir páska lauka söfnun 5. bekkjar Varmahlíðarskóla í Skagafirði fyrir barnahjálp ABC. ,,Börn hjálpa börnum" er árlegt söfnunarstarf ABC. Að þessu sinni er verið að safna fyrir byggingu heimavistar fyrir fátækar stúlkur í Pakistan.
Það er skemmst frá því að segja að söfnunin gekk vonum framar og voru krakkarnir verulega hissa á upphæðinni sem taldist upp úr baukunum, en hún nam 114 þúsund krónum. Á heimasíðu skólans eru öllum þeim sem lögðu söfnuninni lið færðar þakkir.