Söngurinn ómaði í Skagfirðingabúð

Í tilefni af Degi leikskólans sem er sunnudaginn 6. febrúar mættu leikskólabörnin úr Ársölum í Skagfirðingabúð og sungu nokkur vel valin lög nú í morgun.

Fjöldi fólks var mættur til að hlusta á börnin syngja og er óhætt að segja að þau stóðu sig frábærlega. Fyrir sönginn fengu börnin að launum svaladrykk í boði Skagfirðingabúðar. Ljósmyndari Feykis.is var á staðnum og tók nokkrar myndir af ungu söngvurunum.

Fleiri fréttir