Spánverjavíg og skólabúðakennsla

Á fésbókarsíðu Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði er vakin athygli á því að í sumar var sett upp sýning í anddyri safnsins í samvinnu við Baskavinafélagið á Íslandi. Sýningin fjallar um Spánverjavígin sem framin voru á Vestfjörðum fyrir 400 árum. „Baskarnir stunduðu hvalveiðar og sagan tengist Ströndunum sem eru á okkar safnasvæði,“ segir á fésbókarsíðu safnsins.
Í september er safnið opið á hverjum degi og eru áhugasamir hvattir til að koma í heimsóokn og kynna sér söguna og fá sér kaffisopa. Í vetur verður opnunartíminn styttur en þó hægt að heimsækja okkur í hverri viku nema, í desember en þá er lokað nema að hópar sæki sérstaklega um að koma á safnið.
Á fésbókarsíðunni kemur jafnframt fram að Skólabúðirnar á Reykjum hófu sitt 26.skólaár í ágúst. „Nú erum við á safninu að hefja okkar annað skólaár í kennslu fyrir skólabúðirnar á safninu. Við höfum ánægju af að taka á móti krökkunum sem koma víðsvegar af landinu til okkar. Þau eru hress og einlæg og gaman að velta upp með þeim breytingum á samfélaginu í gegnum tíðina. Við reynum að tengja gamla tímann við það líf sem að þau lifa í dag og veltum upp ýmsum spurningum.“