Spennandi námskeið framundan hjá Farskólanum

Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra býður upp á nokkur spennandi námskeið á næstunni sem rækta bæði líkama og sál. Má þar nefna Hugleiðslu og Gongslökun, fræðslunámskeið um gigt og einnig detox, Dale Carnegie námskeið, smíði gróðurkassa, grillnámskeið og skemmtibátapróf.

Samkvæmt fréttatilkynningu verða námskeiðin haldin í Skagafirði og eru komin með ákveðnar dagsetningar. Ennþá eru laus sæti á þau öll.

HUGLEIÐSLA OG GONGSLÖKUN verður haldið þann 16. maí kl. 18.00. Leiðbeinandi er Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir, jógakennari. Verð 6.900,-(1.625 kr. ef að fullu niðurgreitt).

Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir mun leiðbeina í tveimur námskeiðum; GIGTAR-NÁMSKEIÐ sem verður haldið þann 17. maí kl. 10.00 - 12.30, og DETOX NÁMSKEIÐ sama dag frá kl. 13.30 - 16.00. Sama verð er á báðum námskeiðunum , 10.900 kr. (2.277 kr. ef að fullu niðurgreitt).

SMÍÐI GRÓÐURKASSA verður haldið þann 19. OG 21. maí kl. 18.00. Leiðbeinandi er Atli Óskarsson, framhaldsskólakennari. Verð er 13.900,-(3.475 kr. ef að fullu niðurgreitt).

GRILLNÁMSKEIÐ verður haldið 22. maí kl. 18.00. Leiðbeinandi er Þórhildur Jónsdóttir, matreiðslumeistari. Verð 9.900,-(2.475 kr. ef að fullu niðurgreitt).

Dagana 23. – 25. maí verður haldið DALE CARNEGIE námskeið og er það Anna Steinsen, Dale Carnegie þjálfari sem leiðbeinir. Námskeiðið hefst á föstudeginum 23. maí kl. 8:30. Verð 145.000,-(fólki bent á að kanna rétt sinn hjá stéttarfélagi).

SKEMMTI-BÁTAPRÓF verður haldið um leið og næst að fylla hóp. Leiðbeinandi er Pálmi Jónsson, stýrimaður. Verð 56.000,-(14.000 kr. ef að fullu niðurgreitt).

Nánari upplýsingar um þessi og önnur námskeið á www.farskolinn.is undir námskeið.Við minnum á að flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína um 50-75% af námskeiðsgjaldinu.

Skráðu þig núna í síma 455-6010 eða á farskolinn@farskolinn.

Fleiri fréttir