Fréttir

Sterkari saman | Gestaleiðari 39. tölublaðs Feykis

Fimmtudaginn 1. október komu sveitarstjórnarfulltrúar af öllu Norðurlandi vestra saman á Hótel Laugarbakka á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Samtökin eiga sér langa sögu og þingin eru orðin fastur liður í starfi sveitarfélaganna. Þar setjast sveitar-félög, ólík að stærð og aðstæðum, við sama borð og leita leiða til að gera landshlutann enn betri til búsetu og starfa.
Meira

Blái hnötturinn mun svífa í Bifröst

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason, í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar, þann 16. október næstkomandi. Leikgerðin er eftir Berg Þór Ingólfsson. Hátt í 60 manns koma að sýningunni í haust og æfingar hafa staðið yfir af fullum krafti frá því í lok ágúst.
Meira

Lón & Rakel flytja jólalög í Sauðárkrókskirkju

Það styttist óðum í að jólasöngvarar hefji upp sínar raustir enda jólin að nálgast seilingarfjarlægð. Í Skagafirði eru nú í það minnsta þrennir jóla-popp-tónleikar planaðir en Feykir hefur áður sagt frá Jólasveiflu í Miðgarði í lok nóvember þar sem jólalögin hans Geira verða í öndvegi og Jólin Heima sem verða í Miðgarði 12. desember. Nú hafa bæst við jólatónleikar í Sauðárkrókskirkju 3. desember þar sem Lón & Rakel verða á mjúku nótunum.
Meira

Sameining lögregluembætta veldur byggðarráði áhyggjum

Í frétt á Húnahorninu segir að byggðarráð Húnabyggðar hafi áhyggjur af áformum um sameiningu lögregluembætta og að sú miðstýring sem þar er boðuð geti haft neikvæð áhrif á öryggi íbúa. Sérstaklega er bent á hættu á fækkun starfa, lengri útkallstíma og minni áherslu á löggæslu í dreifbýli þegar fram líða stundir. Ráðið telur slíkt óásættanlegt.
Meira

Öruggur sigur á Ármanni í Síkinu

Það var leikið í Síkinu í gærkvöldi en þá kom lið Ármanns í heimsókn. Það fór svo að lið Tindastóls var töluvert sterkari aðilinn og vann alla leikhlutana en það má þó segja að Stólarnir hafi svo gott sem gert út um leikinn í öðrum leikhluta en í hálfleik var staðan 54-37. Mest varð forysta Stólanna 30 stig í síðari hálfleik en gestirnir náðu að laga stöðuna örlítið á lokakaflanum. Lokatölur 109-86.
Meira

Það er líka dýrt að bíða | Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Sumt er nú þannig að manni verður fyrirmunað að skilja. Við tölum um að það vanti raforku, flutningskerfið hamli atvinnuuppbyggingu og hraða þurfi orkuskiptum. Á sama tíma berast fréttir af samdrætti í byggingariðnaði og auknu atvinnuleysi. Verkefnin vantar ekki. Þörfin er fyrir hendi. Hvernig væri að tengja þetta saman?
Meira

„Ooo, ef ég gæti nú bara farið aftur í tímann og séð hvað hér gekk á“

Hvernig var lífið í verbúðum við ysta haf á 12. öld? Hvernig stytti fólk sér stundir þegar enginn var síminn eða sjónvarpið? Undanfarin sumur hefur fornleifarannsókn farið fram í Hafnabúðum á Hjallanesi í landi Hafna á Skaga þar sem umfangsmikil verbúðabyggð hefur verið við sjávarsíðuna. Markmiðið með rannsókninni var að rannsaka líf og starf fólks í gamalli verstöð og hvernig sjávar- og strandauðlindir voru nýttar. Rannsóknirnar benda til þess að starfsemin hafi verið fjölbreytt. Þar fundust meðal annars vísbendingar um fiskveiðar, hvalveiðar, selveiðar, textílvinnu og matargerð. Konur, menn og börn hafa dvalið á staðnum, en ekki eingöngu karlmenn líkt og uppistaðan í seinni tíma hugmyndum um verstöðvar og sjómennsku hefur oft verið.
Meira

Tindastóll – Ármann í kvöld

Þá er komið að fyrsta heimaleik hjá Tindastóli í Bónusdeild karla. Mótherjarnir eru kapparnir í Ármanni en þeim er ekki spáð góðu gengi í deildinni. Spekingarnir á karfan.is segja: „Ingvi Þór Guðmundsson er frábær leikmaður. Lið Ármanns að öðru leyti? Neibb, lóðbeint niður eins og staðan er núna.” Þeir segja líka: „Hvernig tekst Tindastóli að leysa verkefnið í Síkinu með ökkla Drunga laskaðan? Getur Ingvi Þór Guðmundsson haldið Ármanni á floti gegn Stólunum og afsannað hrakspárnar?”
Meira

Marktækt meira kolefni í jarðvegi í beitilandi en óbeittu

Á vef Háskóla Íslands á Hólum er birt mjög svo áhugaverð grein um rannsóknir á kolefnisbindingu í beittu landi og óbeittu. Niðurstöður stangast nokkuð á við það sem haldið hefur verið fram af náttúruverndarfólki sem barist hefur fyrir friðun á landi.
Meira

Páll Óskar heimsækir grunnskólana á Skúnaskralli

Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, Skúnaskrall – Öll saman, hefst með pompi og prakt 21. október og stendur til 4. nóvember. Meðal viðburða eru hrekkjavökuböll á Hofsósi og Blönduósi, stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum, Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu en síðast en alls ekki síst þá mun Páll Óskar heimsækja alla grunnskóla landshlutans og syngja fyrir nemendur.
Meira