Stjórn SSNV ályktar vegna fyrirhugaðrar skerðingar á póstþjónustu

Stjórn SSNV mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar að heimila Íslandspósti að draga úr póstdreifingu í dreifbýli. Mynd: KSE
Stjórn SSNV mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar að heimila Íslandspósti að draga úr póstdreifingu í dreifbýli. Mynd: KSE

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á N orðurlandi vestra, SSNV, hefur sent frá sér ályktun þar sem harðlega er mótmæli þeirri ákvörðun Póst-og fjarskiptastofnunar  að  heimila  Íslandspósti  að  draga  úr  póstdreifingu  í aðildarsveitarfélögunum  sjö  sem  standa  að  SSNV. 

Í ályktuninni segir jafnframt:

„Einnig  mótmælir  stjórn SSNV ákvörðun  Íslandspósts  þess  efnis  að  draga  úr  þjónustu  við  íbúa  Norðurlands  vestra. Ákvarðanir ofangreindra aðila gera það að verkum að enn er vegið að þeirri grunnþjónustu sem  sjálfslögð  og  eðlileg  þykir  víðast  hvar. Vert er að  geta  þess  að  þjónustuskerðingin tekur til um eitt þúsund (um 1/3 hluta) heimila/fyrirtækja á Norðurlandi vestra.

Ofangreind þjónustuskerðing byggir á lögum nr.  19/2002  og reglugerð um framkvæmd laganna nr. 868/2015, og að mestu á 2. málsgrein 10. gr. reglugerðarinnar. 2. mgr. 10 gr. hljóðar svo:

Á dreifbýlissvæðum, þar sem kostnaður við dreifingu  er  þrefaldur  eða  meiri miðað við sams konar kostnað í þéttbýli, er rekstrarleyfishafa heimilt að fækka dreifingardögum í annan hvern virkan dag. Rekstrarleyfishafi skal senda Póst-og  fjarskiptastofnun  tilkynningu  þessa  efnis  með  rökstuddri  greinargerð  um kostnað. Stofnunin skal yfirfara og staðreyna útreikninga rekstrarleyfishafa og eftir atvikum hafna eða samþykkja umsókn, innan þriggja mánaða.

Stjórn  SSNV  efast  um  lögmæti  ofangreinds  ákvæðis  reglugerðarinnar  og  ákvarðanna ofangreindra  aðila  og  minnir  á  að  samkvæmt  21.  gr.  laga  nr.  19/2001  skal  Póst-og fjarskiptastofnun tryggja að alls staðar á landinu sé alla virka daga borinn út póstur sem fellur undir skilgreiningu á alþjónustu nema kringumstæður og landfræðilegar aðstæður hindri slíkt.

Í greinargerð með frumvarpi að ofangreindum lögum segir um 21. gr.:

Hér er fært í lög að póstsendingar innan marka alþjónustu skulu bornar út alla virka  daga  alls  staðar  á  landinu  nema  kringumstæður  eða  landfræðilegar aðstæður komi í veg fyrir útburð. Slíkar kringumstæður geta verið ófærð og óveður eða sérstakar landfræðilegar aðstæður.

Póst-og fjarskiptastofnun gerði árið 1999 könnun á möguleikum þess að koma á útburði pósts hvern virkan dag alls staðar á landinu. Kostnaður á ári var þá áætlaður tæplega 100 millj. kr. umfram þáverandi kostnað við útburð pósts. Með því að fella útburð pósts á virkum  dögum  undir  alþjónustukvaðir  verður  að  gera  ráð  fyrir  að  almenn gjaldskrá rekstrarleyfishafa sem veitir alþjónustu verði að hækka samsvarandi.

„Hvergi  í  lögum nr.  19/2002 er gefin heimild fyrir afslætti  á þessum skyldum öðrum en þeim  sem  fram  koma  í  21.  gr.  þ.e.  að  einungis  „kringumstæður  eða  sérstakar landfræðilegar  aðstæður“  komi  í  veg  fyrir  að  póstdreifing  eigi  sér  stað  alla  virka  daga.

Heimild  til  skerðingar  póstdreifingar  á  fjárhagslegum  forsendum  er  ekki  til  staðar  og  í lögskýringargögnum kemur fram að ætlunin hafi einmitt verið að gjaldskrá þjónustuaðila yrði  að  taka  mið  af  þessum  skyldum  og  því  verður  engan veginn  séð  að  2.  mgr.  10.  gr. reglugerðarinnar   hafi   stoð   í   lögunum.   Það   er   og   viðurkennd   staðreynd   að aðgerðir/ákvarðanir stjórnvalda, m.a. reglugerðir, sem eru íþyngjandi fyrir þegnana verði að hafa skýra og afdráttarlausa lagaheimild, en svo er alls ekki í þessu tilfelli. Auk þessara ofangreindu atriða er það að mati stjórnar SSNV algerlega óásættanlegt að skerða  eigi opinbera þjónustu sem þessa við 1/3 hluta íbúa á Norðurlandi vestra og skerða með því samkeppnishæfni svæðisins enn frekar.

Í   ljósi   ofangreinds   mótmælir   stjórn   SSNV   harðlega   ákvörðunum   Póst -og fjarskiptastofnunar  og  Íslandspósts  og  krefst  þess  að  fyrrgreindar  stofnanir  draga ákvarðanir sínar til baka."

Adolf H. Berndsen formaður stjórnar

Unnur V. Hilmarsdóttir varaformaður stjórnar

Valgarður Hilmarsson

Sigríður Svavarsdóttir

Stefán Vagn Stefánsson

Björn Líndal Traustason framkvæmdastjóri SSNV

Fleiri fréttir