Stóðréttir í Þverárrétt

Stóðréttir fara fram í dag, laugardaginn 29. september, í Þverárrétt í Vesturhópi. Stóðinu verður smalað til réttar um klukkan 12:30.

Kvenfélagið Ársól verður með veitingasölu í réttarskúrnum þar sem hægt verður að versla sér kjötsúpu, pylsur, bakkelsi og annað góðgæti.

Allir eru velkomnir og hver veit nema hægt verði að gera góð hestakaup, segir á Norðanátt.is.

 

Fleiri fréttir