Stólarnir með fullt hús stiga eftir fyrri umferðina í 1. deild
Tindastóll og Höttur áttust við á Egilsstöðum í gær en leiknum hafði verið frestað á föstudag þar sem dómararnir komust ekki austur. Leikmenn Hattar reyndust ekki mikil fyrirstaða fyrir Stólana og vann Tindastóll öruggan sigur, 67-91, og fóru því taplausir í gegnum fyrri umferðina í 1. deild.
Jafnræði var með liðunum framan af en síðustu mínútur fyrsta leikhluta náðu Stólarnir að búa til smá forskot en þá breyttist staðan úr 16-16 í 18-25 en það voru Proctor (6) og Ingvi Rafn (3) sem skoruðu á þeim kafla. Stólarnir náðu fljótlega 10 stiga forystu í öðrum leikhluta og tvær 3ja stiga körfur í röð frá Viðari Ágústssyni komu Stólunum í 16 stiga forystu og eftir það áttu heimamenn aldrei séns. Í hálfleik var staðan 37-50.
Tindastóll var mun sterkari aðilinn í þriðja leikhluta og jók bilið jafnt og þétt. Í fyrstu þremur leikhlutunum skoruðu Stólarnir 25 stig (alls 75) en heimamenn náðu aldrei að skora 20 stig í leikhlutunum fjórum. Nokkrum sinnum í 3ja leikhluta náðu Stólarnir 26 stiga forystu en mestur varð munurinn í leiknum snemma í fjórða leikhluta þegar Ingvi Rafn og Pétur gerðu sitt hvora 3ja stiga körfuna á skömmum tíma og staðan var orðin 49-81. Í kjölfarið fengu óreyndari leikmenn Stólanna að spreyta sig og heimamenn, með Hreinsa Birgis í sínum röðum, náðu að klóra í bakkann. Lokatölur 67-91.
Líkt og svo oft áður í vetur var það góð liðsheild sem skóp sigurinn en Proctor var stigahæstur með 25 stig og 7 fráköst, Ingvi Rafn kom sterkur inn og sýndi hvað í honum býr með 15 stig. Þá voru Pétur og Helgi Rafn með 13 stig hvor. Flest fráköst tók Darrel Flake eða 12 stykki í þær rétt rúmu 20 mínútur sem hann spilaði.
Næsti leikur hjá strákunum verður í Smáranum nk. föstudagskvöld við Augnablik en síðan leika þeir aftur á sunnudag í 8 liða úrslitum í Powerade-bikarnum við lið Fjölnis og fer sá leikur fram í Dalhúsum. Með sigri næðu Stólarnir alla leið í undanúrslit sem sannarlega væri frábær árangur og því full ástæða fyrir stuðningsmenn Tindastóls til að fjölmenna á leikinn.
Stig Tindastóls: Antoine Proctor 25/7 fráköst, Ingvi Rafn 15, Pétur Rúnar Birgisson 13, Helgi Rafn Viggósson 13, Helgi Freyr Margeirsson 7, Viðar Ágústsson 6/6 fráköst, Darrell Flake 4/12 fráköst, Hannes Ingi Másson 3, Finnbogi Bjarnason 2, Ingimar Jónsson 2 og Sigurður Páll Stefánsson 1.