Stólastúlkur leika til úrslita
Stelpurnar í meistaraflokki Tindastóls í knattspyrnu unnu undanúrslitaleikinn á móti Álftanesi sem fram fór á Framvöllum í Úlfarsárdal laugardaginn 3. maí sl.
Lið Álftaness náði forskoti í upphafi leiksins þegar Edda Mjöll Káradóttir kom liði Álftaness yfir á 8. mínútu. Í lok fyrri hálfleiks bætti hún svo við öðru marki og staðan í hálfleik því 2-0 fyrir Álftanes.
Stólastúlkur létu þetta ekki á sig fá og komu enn sterkari til baka i síðari hálfleik. Sigríður Björnsdóttir skoraði fyrsta mark Stólanna í leiknum á 78. mínútu og á lokamínútum leiksins jafnaði Svava Rún Ingimarsdóttir og staðan eftir venjulegan leiktíma því 2-2.
Eftir markalausa framlengingu var farið í vítakeppni. Stólastúlkur sigruðu hana örugglega með fjögur mörk gegn tveimur.
Stólastúlkur leika á móti KR til úrslita föstudaginn 9. maí nk., ekki er komið á hreint hvar leikurinn verður spilaður.
Frábær árangur hjá stúlkunum! Áfram Tindastóll!