"Stolið frá sýslumanni"

Á jólaföstunni árið 1835 varð uppi fótur og fit á heimili Björns Blöndal sýslumanns Húnvetninga í Hvammi í Vatnsdal, þegar upp komst um margvíslegan þjófnað vinnufólksins á bænum. Málaferlin í kjölfarið veita merkilega innsýn í líf og kjör almennings í Húnaþingi á öndverðri 19. öld.

Í fróðlegu og vel sóttu erindi sem Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðingur flutti í safnaðarheimili Hvammstangakirkju á sunnudaginn, greindi hann frá þessum málaferlum og þeim manneskjum sem þar komu við sögu, eins og þau birtast í dómsskjölum og öðrum samtímaheimildum. Einnig varpaði hann ljósi á daglegt líf þeirra, stöðu vinnuhjúa í íslensku samfélagi og þær leiðir sem þau gátu nýtt sér til þess að andæfa valdi yfirboðara sinna og reyna að lifa með reisn þrátt fyrir fátækt sína og undirsetta stöðu í þjóðfélaginu. Erindið er hluti af fyrirlestraröð Byggðasafns Húnaþings og Stranda og ber yfirskriftina „Stolið frá sýslumanni.“

Vilhelm stundar nú doktorsnám í sagnfræði við Háskóla Íslands og viðfangsefni rannsóknar hans er vald og andóf í íslensku samfélagið á 19. öld. Í fyrri hluti erindisins sagði hann frá þjófnaðarmálinu sjálfu, auk þess sem Sigríður Bachmann, safnstjóri, kynnti þau rit sem til sölu eru á meðan á fyrirlestrarröðinni stendur. Því næst var gert örstutt hlé á meðan gestir gæddu sér á kaffi og kleinum. Að því loknu sagði Vilhelm frá sinni greiningu á málsatvikum og málsaðilum, hvernig hann túlkar söguna útfrá þeim staðreyndunum sem hann hafði í höndunum.

Fleiri fréttir