Stórlax úr Víðidalsá

Um síðustu helgi krækti heppinn veiðimaður í 101 cm lax í Víðidalsá í Vestur-Húnavatnssýslu. Samkvæmt frétt á veiðivefnum Lax-á heitir veiðimaðurinn Kristján og veiddi hænginn stóra í Harðeyrarstrend á Silver Wilkison nr 14.

Á síðunni segir jafnframt að stórlaxarnir séu greinilega í Víðidalsánni, en eins og sagt var frá fyrr í sumar veiddist 93 cm lax þar á dögunum.

Fleiri fréttir