Stórt og mikið lamb kom í heiminn á Illugastöðum á Vatnsnesi

Nú er sauðburður að komast í fullan gang hjá sauðfjárbændum og fjöldi lamba sem glíma við það að komast á legg. Mismunandi er hvað leggurinn er stór sem þau þurfa að komast á og fæddist eitt óvenju stórt lamb á Illugastöðum á Vatnsnesi. Nonni, en svo heitir lambið er undan sæðingshrútnum Streng nr 09-891 frá Árbæ og kindinni Tínu Törner og er hún sæðingur undan Langadal sem var lengi á sæðingastöð.

Nonni vó 6 kg við fæðingu og 47 sm brjóstmál og telst hann vera risalamb. Mynd: Auðunn Karlsson.

Hrúturinn vó 6 kg við fæðingu og 47 sm brjóstmál og voru það mikil átök að ná honum frá ánni því honum lá á í heiminn og einungis kom ein löpp og haus. „Þannig að það hófst barningur við að koma honum inn aftur til að nálgast hina löppina, segir Auðunn Karlsson sem sendi Feyki myndirnar af Nonna. „... hafðist þetta að lokum og var Nonni mjög þrekaður þegar hann kom í heiminn og stóð hann ekki á fætur fyrr en eftir eina klukkustund. Heilsast honum og móður vel í dag,“ segir Auðunn.

Fleiri fréttir