Styrkir úr Húnasjóði
Húnasjóður var stofnaður af Ásgeiri Magnússyni og Unni Ásmundsdóttur er ráku Alþýðuskólann á Hvammstanga 1913-1920. Markmið sjóðsins er að stuðla að fag- og endurmenntun íbúa sveitarfélagsins. Styrkir hafa verið veittir úr sjóðnum frá árinu 2001.
Byggðarráð samþykkir að veita eftirtöldum umsækjendum styrk úr Húnasjóði árið 2013:
Aron Stefán Ólafsson, nemi í umhverfisskipulagi.
Guðrún Eik Skúladóttir, nemi í búvísindum.
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, nemi í íslensku með þjóðfræði sem aukagrein.
Gunnhildur Vilhjálmsdóttir, nemi í grunnskólakennarafræðum.
Helga Rakel Arnardóttir, nemi í bókhaldi, viðurkenndur bókari.
Íris Rut Garðarsdóttir, nemi í sjúkraþjálfun..
Sonja Líndal Þórisdóttir, nemi í reiðkennslu og þjálfun.
Sverrir Jónsson, nemi í bílamálun.
Húni.is segir frá þessu.