Sumarkomu fagnað á Sumarkaffi Sjálfsbjargar
Sumarkaffi Sjálfsbjargar verður haldið í Húsi frítímans við Sæmundargötu frá kl. 14 – 17 á morgun, sumardaginn fyrsta. Veðurspáin er góð og er stefnt að því að skapa jafn góða stemningu og var á sumarkaffinu í fyrra.
„Kristjana Arngrímsdóttir söngkona syngur okkur inn í sumarið. Sunna og Tinna sem unnu söngvakeppni FNV koma og syngja og Sigríður Þorgrímsdóttir les upp úr bók sinni Alla mína stelpuspilatíð,“ segir í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónhornsins.
Kaffisala verður á staðnum og nýbakaðar kleinur og muffins, „tilvalið að kíkja í sumarkaffi og styrkja um leið gott málefni.“ Einnig verður fallegt handverk til sölu.
„Allir velkomnir. Gleðilegt sumar!“ segir loks í auglýsingunni.
Vakin er athygli á því að þeir sem sjá sér ekki fært að mæta en vilja styrkja gott málefni og gæða sér að kleinum og muffins geta pantað hjá Stefaníu og fengið keyrt til sín fyrir hádegi á sumardaginn fyrsta. Sími 866 4775; 10 stk. kleinur á 700 kr. og 10 stk. muffins á 700 kr.
Að neðan má sjá þá góðu stemningu sem ríkti í sumarkaffinu í fyrra.http://youtu.be/9Hg-EZYLy9s