Sumarleikhús æskunnar í Húnaþingi vestra

Í sumar stendur Handbendi fyrir Sumarleikhúsi æskunnar í Húnaþingi vestra. Um er að ræða sjö vikna verkefni sem opið er öllum börnum og ungmennum frá 7-18 ára að aldri. Þetta er í fyrsta skipti sem Sumarleikhús æskunnar eru haldið.

Sumarleikhús æskunnar er leikhús- og leiklistarsmiðja sem fer fram tvisvar í viku og stendur yfir frá 18. júní – 24. ágúst. Þátttakendur munu mestmegnis vinna með fólki á svipuðum aldri að uppsetningu leikverka en ákveðin verkefni vinna þátttakendur allir saman. Sýningarnar munu hver fyrir sig henta aldurshópnum sem þær flytur og sinna þörfum, áhuga, og styrkeikum hvers hóps fyrir sig.

Meðan á verkefninu stendur læra þátttakendur um leikhús, kynna sér mismunandi leikhústækni og setja upp sýningar sem sýndar verða almenningi við lok verkefnisins. Fagmenntað fólk mun vinna með þátttakendum að listsköpuninni.

Sýnt verður á endurbættu sviði Félagsheimilisins á  Hvammstanga en þar er nú kominn upp nýr og góður tæknibúnaður. Fagmanneskja í leikhúshljóði og -ljósi aðstoðar þátttakendur við sýningarnar og mun kynna grunnatriði ljós- og hljóðhönnunar fyrir hverjum þeim sem áhuga kann að hafa, ásamt almennri nálgun á tækniatriði leikhússins.

Hver tími verður þriggja klukkustunda langur, að pásum meðtöldum. 
Þáttökugjald er 35.000 kr. í heild og allur kostnaður við sýninguna er þar innifalinn.

Skráning er hafin á vefsíðunni www.sumarleikhus.com

Dagsetningar: 18.,19., 25. og 26. júní, 9., 10., 16. og 17. júlí og 6., 7., 13. og 14. ágúst.
Lokavika fyrir sýningu er 19. – 23. ágúst (þá þurfa allir að vera á staðnum).
Sýningar verða laugardaginn 24. ágúst.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir