Svartþröstur að flækjast á Króknum
feykir.is
Skagafjörður
13.11.2013
kl. 14.41
Valgeir Kárason á Sauðárkróki sendi okkur meðfylgjandi mynd af svartþresti sem varð á vegi hans nú fyrir stundu. Svartþrestir munu vera sjaldgæfir flækingar á Króknum, en þetta er litlir svartir fuglar sem eru ungir með svart nef, sem verður svo skærgult á eldri fuglum.
Valgeir segir fuglinn hafa verið á flótta undan fjórum hröfnum er hann leitaði skjóls undir húsvegg mötuneytis Vegagerðarinnar á Króknum nú fyrir stundu. Taldi Valgeir hann meiddan og færði honum brauð, en fuglinn tók þá flugið og virtist alheill.