Sveitarstjóri komi slæmu ástandi Vatnsnesvegar á framfæri
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra sem fram fór þann 11. október var rætt um Vatnsnesveg en á hann hefur verið minnst í fréttum í langan tíma. Hann þykir langur, erfiður og úr sér genginn og hefur umferð aukist með vaxandi ferðammannakomum eða um 40% á ári. Í bókun sem gerð var á fundinum kemur fram að daglegur ferðatími barna með skólabíl um þennan veg hefur lengst um allt að 35 mínútur og hefur þá farið yfir þann tíma sem við er miðað samkvæmt reglum um skólaakstur eða 120 mínútur á dag.
“Álagið af völdum ferðamanna á Vatnsnesvegi og langvarandi skortur á viðhaldi vegarins hefur því orðið þess valdandi að illmögulegt er á tíðum fyrir sveitarfélagið að uppfylla kröfur um ferðatíma skólabarna, sem auðvelt væri að uppfylla væri vegurinn í góðu ástandi. Hér er sannarlega um að ræða mál þar sem reynir á samfélagsleg þolmörk ferðaþjónustunnar.
Byggðarráð áréttar að brýn nauðsyn er á því að ráðist verði án tafar í bráðnauðsynlegar úrbætur á Vatnsnesvegi og að gert verði ráð fyrir áframhaldandi varanlegum framkvæmdum, breikkun vegar og lagningu slitlags strax á árinu 2017 í samgönguáætlun áranna 2015-2018, sem nú bíður samþykktar á Alþingi,” segir meðal annars í bókun byggðarráðs en hana er hægt að finna í heild sinni HÉR.