Sýnikennsla í Þytsheimum

Laugardaginn 1. desember stendur Hestamannafélagið Þytur fyrir áhugaverðri sýnikennslu í Þytsheimum Hvammstanga. Þar munu þrír hestasnillingar miðla af þekkingu sinni og reynslu  til áhorfenda Dagskráin hefst kl. 17:00 og lýkur 19:30.

Ísólfur Líndal Þórisson

Gert er ráð fyrir einu matarhléi og verða veitingar til sölu á staðnum.

Fram koma:

  • Guðmundur Arnarson þjálfari og reiðkennari
  • Ísólfur Líndal Þórisson þjálfari og reiðkennari
  • Þórarinn Eymundsson tamningameistari

Aðgangseyrir kr. 2000.- sem rennur óskiptur til hestamannafélagsins Þyts.

Frítt fyrir 14 ára og yngri.

Þórarinn Eymundsson

Fleiri fréttir