Tamið í brekkum, þúfum og hæðum

Ábúendur á Stóru-Ásgeirsá í Víðidal, þau Ásgeir Elíasson og Rannveig Aðalbjörg Hjartardóttir, hafa komið sér upp skemmtilegu umhverfi til tamninga. Frá því er sagt í viðtali við þau sem birtist í 1. tbl Eiðfaxa á þessu ári.

„Síðasta haust útbjuggum við rekstrarhring niður á engjar frá hesthúsinu. Þar er mjúkt land með brekkum og þúfum og hæðum. Við erum mjög ánægð með þessa framkvæmd sem býður upp á alhliða þjálfun þar sem reynir á snerpu, styrk og þol. Okkur finnst gaman að sjá hvað hrossin verða jákvæð, spennulaus og hafa gaman af að hlaupa frjáls," segja þau Ásgeir og Rannveig, í broti úr viðtalinu sem er birt á vef Eiðfaxa.

Fleiri fréttir