Þakkir frá sauðfjárbændum í V-Hún
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
02.09.2013
kl. 08.15
Stjórn Félags sauðfjárbænda í Vestur Húnavatnssýslu vill fyrir hönd félagsmanna sinna koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem voru boðnir og búnir að koma okkur til aðstoðar þegar manna þurfti smalamennskur á afréttum og heimalöndum á stórum svæðum fyrirvaralaust í liðinni viku.
Slíkur stuðningur og velvild sem þarna kom í ljós í garð okkar sauðfjárbænda er ómetanlegur.
