Þorrablót Skagfirðingafélagsins fyrsta laugardag í þorra

Hið árlega þorrablót Skagfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldið laugardaginn 25. janúar 2014 í Þróttaraheimilinu í Reykjavík. Boðið verður upp á glæsilegt þorrahlaðborð og fjöldasöng, auk þess sem Fúsi Ben og Vordísin spila nokkur lög.

Veislustjórar verða Palli Friðriks og Guðný Axels. Slagarabandið, skipað Adda í Útvík, Eika Hilmis, Sólmundi og fleirum lokar kvöldinu og leikur fyrir dansi fram á nótt. Nánari upplýsingar fást hjá Skagfirðingafélaginu sem er með netfangið skagfirdingafelag@gmail.com og heimasíðu sem hægt er að smella á hér.

Fleiri fréttir