Þrjár stúlkur úr Tindastól á úrtaksæfingum hjá yngri landsliðum
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
06.12.2013
kl. 09.45
Um helgina verða haldnar úrtaksæfingar hjá yngri landsliðum kvenna og boðuðu þeir Ólafur Þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari U19 og Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari U17 kvenna þrjár stúlkur úr Tindastól á æfingarnar. Þetta eru þær Jóna María Eiríksdóttir og Kolbrún Ósk Hjaltadóttir í árgangi 1998 en Hugrún Pálsdóttir 1997.
Rúmlega 100 stúlkur í þremur árgöngum voru boðaðar en æfingar fara fram á laugardag og sunnudag ýmist í Kórnum eða Egilshöll.