Þröstur hættir hjá Dögun
Þröstur Friðfinnsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar Dögunar ehf. á Sauðárkróki frá 2004, hefur fyrir nokkru sagt starfi sínu lausu og verður starfið auglýst laust til umsóknar á næstu dögum. Ekki hefur verið ákveðið hvenær Þröstur lætur af störfum, en reiknað með að það verði ekki síðar en í febrúar.
Þetta hefur verið áratugur mikilla framkvæmda og tækniþróunar í vinnslunni og skemmtilegur og krefjandi tími hjá Dögun. Rekstararumhverfi rækjuvinnslunnar hefur þó verið mjög erfitt lengst af og er enn, nú glíma vinnslurnar við hráefnisskort og mjög hátt hráefnisverð af þeim sökum. Reiknað er með að vinnsla verði áfram með svipuðu sniði og verið hefur hjá Dögun.