Þvert á það sem Íslandspóstur boðaði þegar pósthúsum var fækkað

Skagafjörður. Ljósm./BÞ
Skagafjörður. Ljósm./BÞ

Rætt var við Stefán Vagn Stefánsson, formann byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag. Þar sagði hann sveitarfélagið ætla að leita skýringa hjá Íslandspósti á þeirri skertu póstþjónustu sem fyrirsjáanleg er í sveitarfélaginu með fækkun á dreifidögum í dreifbýli. Stefán segir fækkun daga við póstdreifingu ganga þvert á það sem Íslandspóstur boðaði þegar pósthúsum í firðinum var fækkað. 

Fjallað hefur verið um fækkun dreifidaga Íslandspósts hér á feyki.is en Póst- og fjarskiptastofnun hefur heimilað svokallaða  2+3 dreifinu, þar sem, þ.e. þriðjudag og fimmtudag í viku 1 og mánudag, miðvikudag og föstudag í viku 2 o.s.frv. Breytingin tekur m.a. til Hvammstanga (pnr. 531, 500), Blönduóss (541, 540, 545) og Sauðárkróks (551, 560, 565, 566, 570) og tekur gildi þann 1. mars 2016.

Í hádegisfréttum sagði Stefán Vagn Stefánsson þessa breytingu mikið áhyggjuefni og ekki hjálpa til við að laða fólk að varðandi búsetu og annað. Það sé enn og aftur verið að höggva í landsbyggðina. 

Hann bendir á að á Hólum sé háskólastarfsemi og þetta sé slæm skerðing þar. Þá sé ekki langt síðan pósthúsunum á Hofsósi og í Varmahlíð hafi verið lokað. „Ein af forsendum þess að menn lokuðu var sú að menn ætluðu ekki að skerða þjónustu. Þetta yrði þjónustuaukning og ég get ekki séð að þetta sé þjónustuaukning,“ sagði Stefán. 

Hann segir þetta sé að fara í nákvæmlega þann farveg sem heimamenn í Skagafirði hafi óttast og að ætlunin sé að óska eftir fundi með Íslandspósti.

Frétt um málið má lesa á Rúv.is. 

Fleiri fréttir