Tillaga Birgis Þórs verður kennimerki fyrir "Gæði í Húnaþingi"
Eins og Feykir hefur greint frá efndu „Gæði í Húnaþingi“ til hönnunarsamkeppni um kennimerki fyrir þær vörur sem falla undir verkefnið. Sigurvegari keppninnar var Birgir Þór Þorbjörnsson á Hvammstanga.
Tillaga Örnu Rósar sem hafnaði í 2. sæti.
Alls bárust 37 tillögur frá 20 aðilum í keppnina og voru þátttakendur flestir heimamenn, en einnig nokkrir Skagfirðingar, Blönduósingar, þátttakendur búsettir sunnan heiða og jafnvel erlendis.
Verðlaunin voru afhent í Verslunarminjasafninu Bardúsa á Hvammstanga á sumardaginn fyrsta. Vinningstillöguna átti sem fyrr segir Birgir Þór Þorbjörnsson á Hvammstanga. Önnur verðlaun komu í hlut Örnu Rósar Bragadóttur, grunnskólanema á Hvammstanga, sem nemur hönnun í fjarnámi en mun ljúka grunnskóla í vor. Þriðju verðlaun hlaut Astrid Schumm á Laugarbakka. Tillögurnar í 4. og 5. sæti komu frá Þuríði Hörpu Sigurðardóttur og Ritu Didriksen á Sauðárkróki.
Þessi tillaga frá Astrid Schumm lenti í 3. sæti.
Að „Gæði í Húnaþingi“ standa ýmsir ferðaþjónustuaðilar sem bjóða upp á mat úr héraði, handverk og/eða aðra þjónustu sem hægt er að „votta“ með gæðamerki sé farið eftir gæðaviðmiðum sem hópurinn mun setja saman.
Önnur af tillögum Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur og Ritu Didriksen.
Hin tillagan frá Þuríði Hörpu og Ritu.