Tilnefningar til íþróttamanns ársins 2014 hjá USVH

USVH óskar eftir ábendingum frá íbúum Húnaþings vestra vegna tilnefningar til íþróttamanns USVH árið 2014. Í samræmi við 1.grein reglugerðar um íþróttamann USVH er hér með óskað eftir ábendingum frá íbúum Húnaþings vestra um íþróttafólk sem sýnt hefur góðan árangur í sinni keppnisgrein árið 2014.

Ábendingarnar skulu berast stjórn USVH fyrir 11.desember næstkomandi. Hægt er að skila inn ábendingum ásamt greinagerð yfir árangur ársins á skrifstofu USVH að Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga, eða með tölvupósti á netfangið usvh@usvh.is, eins og greint er frá í auglýsingu frá stjórn USVH í nýjasta tölublaði Sjónaukans.

Fleiri fréttir