Tímamót hjá Fúsa Ben og Vordísinni

Út er kominn nýr diskur með þeim Fúsa Ben og Vordísinni sem inniheldur níu frumsamin lög og texta eftir þau sjálf og eru lögin að þeirra sögn mjög fjölbreytt. Diskurinn sem ber heitið Tímamót - behind the mountains, er tekinn upp og unninn af Fúsa í Stúdíó Benmen. Hljóðfæraskipan er allt frá því að vera kassagítar og svo trommur, bassi gítar, píanó og fleiri hljóðfæri auk söngs. -Blanda af ýmsum tónlistarstefnum. Acoustic stíll yfir flestum lögunum og einlægni, segir Silla.

Eins og flestir vita eru það Sigfús Arnar Benediktsson og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir á Sauðárkróki sem eru á bak við Fúsa Ben og Vordísina en þau hafa spilað og sungið um nokkurt skeið og getið sér góðan orðstír. Diskinn er hægt að nálgast í Skagfirðingabúð, KS Varmahlíð, KS Hofsós og hjá listafólkinu sjálfu á facebook undir Fúsi Ben & Vordísin eða  á sigfusben@gmail.com.

HÉR er hægt að nálgast lagið Fjarlægð á Soundcloud:

Fleiri fréttir