Tindastóll-Fjölnir í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
08.11.2013
kl. 14.52
Kapparnir í Fjölni munu mæta á Krókinn í kvöld og reyna að ræna stigum frá sigursælum Stólum sem nú tróna á toppi 1. deildar Íslandsmótsins í körfubolta. Fjölnir hefur aðeins unnið einn leik af þremur það sem af er þessu tímabili svo búast má við drengjunum í baráttuham.
Leikurinn hefst samkvæmt venju kl 19:15 og er óskað eftir því á heimasíðu Tindastóls að einhverjir eða einhver gæti mætt með trommur í Síkið og stýrt stemmingunni. Allir að mæta og hvetja Stólana til sigurs.