Tindastóll – FSu annað kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
30.01.2014
kl. 08.34
Tindastóll fær FSu í heimsókn á föstudagskvöld og hefst leikurinn kl 19:15. Það má búast við hörku leik við sunnlensku piltanna í FSu. Þetta er vel mannað og skipulagt lið sem er ekkert auðvelt að eiga við.
Lentu Stólarnir í miklum slag við þá í fyrri umferðinni þar sem Proctor hélt þeim á floti með 48 stiga leik í Iðu á Selfossi, leik sem Stólarnir unnu með 11 stigum. Það er alveg á tæru að Tindastóll þarf að eiga sinn besta leik og framlag frá sem flestum til að leggja sprækt lið Fsu af velli. Á heimasíðu Tindastóls eru menn hvattir til að fjölmenna í síkið og koma raddböndunum í form fyrir bikarslaginn við ÍR á mánudagskvöld.