Tindastóll mun líklegast ekki tefla fram liði í 1. deild karla næsta sumar
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
03.01.2014
kl. 18.36
Tindstóll hefur spilað í 1. deildinni síðustu ár og gert góða hluti en þjálfari liðsins, Halldór Jón Sigurðsson lét af störfum eftir tímabilið.
Á vef 433.is er sagt frá því að fjárhagstaðan hjá félaginu sé ekki góð og útlitið ekki bjart fyrir sumrinu. Því íhuga forráðamenn félagsins nú að draga liðið úr keppni og tefla fram liði í 4. deildinni næsta sumar.
Jón Stefán Jónsson er þjálfari liðsins í dag en hann tók við þjálfun liðsins fyrr í vetur af Donna.
Ef að svo fer að Tindastóll sendir ekki lið til keppni í 1. deild kæmi það í hlut KF eða Aftureldingar að taka sæti þeirra.