Tískuhúsið hættir rekstri

Rekstri Tískuhússins á Sauðárkróki verður hætt frá og með deginum í dag eftir tuttugu ára verslunarsögu þess. Anna Sigríður Stefánsdóttir eigandi verslunarinnar mun í framtíðinni sjá um fatadeildina í Skagfirðingabúð. -Ég lít á þetta sem spennandi verkefni sem verður mun umfangsmeira en ég hef verið að gera hingað til þar sem ég hef einungis verið með kvenfatnað í Tískuhúsinu. Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni og vonast til að sjá viðskiptavini mína á nýjum stað, segir Anna Sigga sem vill þakka öllum þeim sem verslað hafa við hana sl. tuttugu ár.

Að sögn Árna Kristinssonar verslunarstjóra Skagfirðingabúðar verða engar breytingar á innanstokksmunum en hins vegar áherslubreytingar í vöruvali. –Vörumerkin sem Tískuhúsið var með munu koma inn og bestu merkin halda áfram að fást í versluninni, segir Árni.

Fleiri fréttir