Tónlistarnemendur vinna til verðlauna

Svæðistónleikar Nótunnar hafa verið haldnir víðsvegar um landið og unnu nokkrir nemendur tónlistarskólanna á Norðurlandi vestra til verðlauna á þessum tónleikum.

Guðfinna Sveinsdóttir og Matthildur Kemp Guðnadóttir frá Tónlistaskóla Skagafjarðar unnu til verðlauna á svæðistónleikum fyrir Norður- og Austurland sem fór fram í menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 15. mars. Samkvæmt Facebook síðu Nótunnar fluttu þær á fiðlu Konsert í a moll op. 3, - A. Vivaldi, Allegro 1. kafli. Meðleikari var Thomas R. Higgersson.

Á svæðistónleikum fyrir Vesturland og Vestfirði unnu Ásdís Aþena Magnúsdóttir og Anna Elísa Axelsdóttir frá Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Þær fluttu Stjörnudans, Ásdís Aþena söng og lék á píanó og Anna Elísa lék einnig á píanó.

 

Fleiri fréttir