Tveir Skagfirðingar taka þátt í Evrópukeppni landsliða í frjálsum

Samkvæmt vef Tindastóls tekur Íslenska frjálsíþróttalandsliðið þátt í Evrópukeppni landsliða sem fram fer um helgina í Tiblis í Georgíu. Liðið hefur einsett sér að vinna sig upp um deild og miðað við frábærar framfarir hjá íslenska landsliðinu nú í vor er það raunhæft markmið. Til þess þarf liðið að verða í öðru tveggja efstu sæta deildarinnar, en það hefur skipað 4. sætið síðustu tvö árin.

Þátttökuþjóðirnar eru: Albanía, Andorra, Armenía, Azerbijan, Bosnía/Herzegovína, Georgía, Ísrael, Ísland, Kýpur, Luxemburg, Malta, Moldova, Svartfjallaland og Smáþjóðabandalagið.

Skagfirðingar eiga tvo fulltrúa í íslenska hópnum, Jóhann Björn Sigurbjörnsson hleypur 100m og bæði boðhlaupin 4x100m og 4x400m, en Sigurður Arnar Björnsson, þjálfari Tindastóls, er í þjálfarateyminu.

Landsliðshóp Íslands má sjá hér

Sigurður Arnar þjálfar. Ljósm./Tindastóll.is

Fleiri fréttir