Undirbúningur Jónsmessuhátíðar kominn í fullan gang

Jónsmessuhátíðin á Hofsósi hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af stærri viðburðum í skagfirsku menningarlífi og er vinsæl fjölskylduhátíð. Hátíðin í ár verður haldin dagana 20.-22. júní, það er helgina fyrir sjálfa Jónsmessuna.

Að sögn Kristjáns Jónssonar frá Óslandi, sem er einn af forsvarsmönnum hátíðarinnar, verður hún með hefðbundnu sniði. Dagskrárliðir eins og fótboltamót, barnaleikir og gönguferð sem þykja ómissandi á dagskránni, verða á sínum stað.

„Undirbúningur er kominn á fullt skrið og dagskráin er væntanleg innan tíðar,“ sagði Kristján í samtali við blaðamann Feykis í dag. Fylgjast má með framvindu mála á fésbókarsíðu hátíðarinnar, auk þess sem Feykir.is mun greina frá helstu upplýsingum um leið og þær berast.

Fleiri fréttir