Uppbygging ferðaþjónustu á lóð Grettisbóls
Á vef Húna.is er sagt frá því að Byggðarráð Húnaþings vestra samþykkti á dögunum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Grettisból við Laugabakka í Miðfirð. Á uppdrætti að deiliskipulaginu kemur m.a. fram að skipta eigi svæðinu í þrjá meginhluta. Þegar hafa verið lagðir stígar um svæðið og gert er ráð fyrir um 50 bílastæðum. Samkvæmt uppdrættinum á að hlaða smiðju úr torfi og grjóti. Byggingu, sem þegar er á svæðinu, á að færa í „fornan stíl“. Hún á að hýsa gestamóttöku, minjagripaverslun og sýningaraðstöðu.
Þá er áformað að byggja áhalda- og geymsluhúsnæði sem verður einnig með fornu yfirbragði og gert er ráð fyrir að settar verði upp tímabundið búðir með sölutjöldum. Nokkur starfsemi er þegar á svæðinu, t.d. hafa þar verið haldin víkinganámskeið fyrir börn.
Í Morgunblaðinu þann 6. ágúst sl. var fjallað um þessar fyrirhuguð framkvæmdir og rætt við Pétur Jónsson, einn forsvarsmanna menningar- og fræðslustofnunarinnar Grettistaks ses, sem stendur að baki Grettisbóls. Fram kemur hjá Pétri að það sé langt síðan hugmyndirnar hafi komið fram og svæðið verið í hægri uppbyggingu síðan en lítið hafi gerst síðan 2007 því fyrsti vilji menn afla fjár fyrir því sem þarf að framkvæma. Hann segir að fé hafi fyrst og fremst fengist með styrkveitingum, aðallega frá sveitarfélaginu en einnig frá Menningarráði Norðurlands vestra, Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og fleirum.
Spurður út í frekari uppbyggingu í ferðaþjónustu á svæðinu segir Pétur í samtali við Morgunblaðið. „Hér er ótal margt að sjá, náttúran einstök og margar fallegar gönguleiðir. En það er líka þörf á annars konar afþreyingu og við sjáum mikla möguleika í ferðaþjónustu sem tengist Íslendingasögunum. Fólk um allan heim þekkir þær og kemur hingað gagngert til að fara á söguslóðir. Íslendingasögunum hefur ekki verið gert nógu hátt undir höfði í ferðaþjónustunni, það hefur þó breyst eitthvað á undanförnum árum. En það má gera betur. Fjölskyldufólk og börn hafa orðið svolítið útundan í ferðaþjónustunni og við viljum bæta úr því. Við leggjum áherslu á hreyfingu og viljum líka að fólk geti upplifað menningu þess tíma þegar Grettir var uppi.“