Uppsteypa með lægra tilboðið í leikskólann á Hofsósi

Á fundi byggðarráðs Svf. Skagafjarðar í síðustu viku voru lögð fram tilboð í verkið Leikskóli á Hofsósi. Alls bárust tvö tilboð í verkið en ákveðið var að ganga til samninga við Uppsteypu ehf. sem var með lægra boðið.

Kostnaðaráætlun verksins hljóðaði upp á 143.007.623 kr. en tilboð Uppsteypu var 16,7 milljón krónum hærra og hljóðaði upp á  159.705.806 kr. Friðrik Jónsson ehf. átti hitt tilboðið sem var tæpum 46 milljónum hærra en kostnaðaráætlun eða 188.782.925 kr.

Byggðarráð fól sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli tilboðs hans. Uppsteypa er skagfirskt byggingafyrirtæki með lögheimili á Syðri-Hofdölum.

Tengd frétt: Vonast til að leikskólabygging á Hofsósi fari í útboð innan skamms.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir