Útiæfingar hafnar hjá barna- og unglingastarfi GSS

Útiæfingar hjá Golfklúbbi Sauðárkróks hófust í gær með opinni æfingu fyrir alla í barna- og unglingastarfinu.

Hlynur Þór Haraldsson mun sjá um æfingarnar í sumar. Á vef Golfklúbbsins hafa æfingatímar fyrir barna- og unglingastarfið verið auglýstir. Æfingatímar í maí verða eftirfarandi:

Yngri hópurinn er 11 ára og yngri og eldri hópurinn er 12 ára og eldri.

Mánudagar kl.17:00-18:30 yngri

Þriðjudagur kl.19:00-20:30 eldri

Miðvikudagur kl.17:00-19:00 opin æfing fyrir bæði yngri og eldri

Fimmtudagur kl.17:00-18:30 yngri og kl.19:00-20:30 eldri

Fleiri fréttir