Vantar mann hjá Brunavörnum Skagafjarðar

Brunavarnir Skagafjarðar leita nú eftir starfsmanni í starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns en starfið felst í vinnu við slökkvi- og sjúkraflutningaþjónustu, slökkvitækjaþjónustu og annarra starfa á slökkvistöð. Útkalls- og bakvaktarskylda er utan dagvinnutíma. Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði  reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og lög nr. 75/2000 um Brunamál og einnig er nám í sjúkraflutningum ( EMT-I) æskilegt.

Þá þurfa umsækjendur að hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. Einnig þurfa þeir að lokinni reynsluráðningu hafa aukin réttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið hafa iðnmenntun (sveins- eða vélstjórapróf) sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.

Svo þarf að standast læknisskoðun og þrekpróf og skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og góð framkoma skulu viðhöfð auk þess sem almenn tölvukunnátta er æskileg. Starfið hentar konum jafnt sem körlum.

Nánari upplýsingar eru á vef Svf. Skagafjarðar

Fleiri fréttir