Vel sóttir minningartónleikar
Unglistahátíðin Eldur í Húnaþingi var sett á Hvammstanga í gær. Eftir setningarathöfn og opnun nytjamarkaðs Gæranna voru minningartónleikarnir 40/40 í Hvammstangakirkju. Á tónleikunum var minnst þeirra sem látist hafa innan við 40 ára gamlir á síðustu 40 árum í Húnaþingi vestra. Sungið var lag og tendrað á kerti fyrir hvern og einn.
Við athöfnina afhennti Gréta Jóseps frá Litla-Ósi ljósaaltari sem þau hjónin gáfu kirkjuni til minningar um son þeirra Þórólf.
Tónlistarfólkið sem fram kom var allt úr Húnaþingi vestra eða tengdist svæðinu á einhvern hátt. Gríðarlegur fjöldi gesta var á tónleikunum og var kirkjan yfirfull auk þess sem margir sátu í grunnskólanum, en þangað var tónleikunum sjónvarpað.
Hér að neðan er listi yfir þá sem minnst var á tónleikunum, hvaða lag var sungið til minningar um hvern og einn og hver flutti lagið. Þess má þó geta að í sumum tilfellum bættust við aukaflytjendur.
Til minningar um: Lag: Flytjandi: Örn Steinar Ásbjarnarson Death is not the end Valdimar Halldór
Bjarki Haraldsson Hallelujah Kolbrún Sif
Davíð Örn Þorsteinsson Alive Kristinn Rúnar
Skúli Már Níelsson Nothing else matters Brynja Ósk
Stefán Þorbjörnsson Hvert örstutt spor Elvar Logi
Þórólfur Alvin Gunnarsson Ég lifi Sonja Karen
Ragnheiður Þórsdóttir Þegar sólin sest Hrafnhildur Ýr
Arnar Karl Bragason Wish you were here Benedikt og Haraldur
Íris Dröfn Sigurðardóttir Minning Valdimar og Ingunn Elsa
Sigurbjörn Einarsson Ó þú Kristrún og Ástrós
Björgvin Örnólfsson Syneta Kristinn Rúnar
Axel Ásþór Gústavsson Tears in heaven Hrafnhildur Ýr
Jónas Sigfússon Ég syng þennan söng Hulda Signý
Jóhann Ólafur Jóhannsson Myndir Jóhann Ingi
Guðjón Páll Arnarsson Við freistingum gæt þín Elvar Logi
Gunnar Valgeirsson Tvær stjörnur Hrafnhildur Ýr
Magnús Viðar Jóhannesson Hvers vegna varst´ekki kyrr Hulda Signý
Óskírður Benediktsson Kvæðið um fuglana Ingunn Elsa
Óskírð Birgisdóttir Sofðu unga ástin mín Kolbrún Sif
Guðmundur Hólmar Jónsson Í þennan heim Guðmundur og Ingibjörg
Sigurbjörn H. Jóhannesson Strawberry fields forever Kristrún
Kristín Sylvía Ólafsdóttir Sofðu rótt Bergþóra Fanney
Árni Ingvar Guðmannsson Án þín Bergþóra Fanney