,,Verið velkomin á Eld í Húnaþingi"
Þessa dagana fer fram Eldur í Húnaþingi, sem er bæjarhátíð í Húnaþingi vestra. Hátíðin var fyrst haldin árið 2003 og hefur síðan farið fram í lok júlí ár hvert. Eldur í Húnaþingi er „Unglistar- og menningarhátíð“ í sínum víðasta skilningi þar sem stiklað er á stóru í menningu og listum. Sigurvald Ívar Helgason er framkvæmdastjóri hátíðarinnar í ár, en hann er fæddur og uppalinn á Hvammstanga.
“Ég er borinn, barnfæddur og tilraunir til uppeldis fóru líka að mestu fram hér á Hvammstanga," segir Sigurvald, en hann er sonur hjónanna Helga Ólafssonar, rafvirkjameistara og fyrrverandi organista, og Dóru Eðvaldsdóttur, fyrrverandi verslunarmanns og þúsundþjalasmiðs.
„Aðsóknin hefur verið mjög góð, og margir stilla fríin sín og ferðalög til Hvammstanga síðustu helgina í júlí, ár hvert. Satt að segja höfum við haldið aftur af okkur í kynningu og auglýsingum, því að fjöldi gesta hefur verið nánast fullkominn ef svo má segja. Aðgangur er ókeypis að flestu af því sem í boði er og aðsókn á viðburði sem kostar inn á hefur verið mjög góð. Þar fyrir utan myndi veruleg fjölgun gesta auka á álag íbúa og hvers kyns þjónustu, sem er þó nokkuð þessa daga.
Við viljum halda litlu hátíðinni okkar „lítilli“ áfram," segir Sigurvald um Eld í Húnaþingi.
Sigurvald er í opnuviðtali Feykis sem kemur út í dag.