Verkefni Björgunarsveitarinnar Húnar
Björgunarsveitin Húnar hefur haft í nógu að snúast undanfarið. Á heimasíðu sveitarinnar voru verkefnin talin upp sem komið hafa upp síðustu vikurnar.
F1 Vesturhópsvatn
Sl. laugardagskvöld, 06.07 var björgunarsveitin kölluð út með mesta forgangi F1 en tveir drengir voru í vandræðum á Vesturhópsvatni á árabát og réðu ekki við hann og var einungis annar þeirra í björgunarvesti. Okkar menn voru komnir út á þjóðveg 1 með Birnu þegar kom afboðun og búið var að koma drengjunum til aðstoðar. Það má segja að viðbragðið hafi verið mjög gott en frá því að boðun kom frá Neyðarlínunni og þar til afboðum kom liðu einungis 11 mínotur og á þeim tíma voru okkar menn búnir að fara heiman frá sér og koma bátnum aftan í bíl og komnir út á þjóðveg 1 með allan búnað með.
Birna. Tekið við annað tækifæri. Mynd: hunar.123.is
Bílaleigubíll fastur
Óskað var eftir aðstoðar sveitarinnar þann 4.7. s.l. en tveir þjóðverjar á Toyota Landcruiser bílaleigubíl höfðu fest bíllinn í sandbleytu fremst í Búðarádrögum. Farið var á Húna 1 frá Hvammstanga og tókst að ná bílnum og var ferðalöngunum fylgt niður í Miðfjörð í framhaldinu.
Bílaleigubíllinn fremst í Búðarárdrögum. Mynd: Sigurbjartur Ben.
Bíll út við Arnarvatn
Þann 20.6 var beðið um aðstoð okkar en fermaður lenti í vandræðum við Arnarvatn er bíll hans lenti utan vegar og var við það að velta. Áður en okkar menn komust á staðinn var bar að bónda neðan úr Miðfirði sem var að keyra fá á heiðina og gat hann aðstoðað ferðamanninn.
Leit í Skagafirði
Þann 11.6 og 14.6 sendum við mannskap vegna leitar að manni sem féll í Hjaltadalsá í Skagafirði. Í fyrra skiptið fór leitarhópur en síðari daginn var farið með harðbotnabát sveitarinna Birnu á svæðið og leitað á sjó.
Tekið í leitinni í Mjóafirði. Mynd: hunar.123.is
Leit Mjóafirði
Þann 1.6 sendi sveitin mannskap í leit í Heydal í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp og var sameiginlegur leitarflokkur sendur með félögum okkar úr Bjf. Blöndu á svæðið. Konan fannst síðar heil á húfi 2.6.