Viðurkenndir víkingar
Í sumar verða haldin fjögur tveggja daga víkinganámskeið fyrir börn á vegum Grettistaks á Grettisbóli á Laugarbakka. Fyrsta námskeiðið var haldið í síðustu viku. Þangað mættu níu börn og skemmtu sér konungslega við að læra um lifnaðarhætti víkinga og þann tíma þegar Grettir sterki frá Bjargi í Miðfirði var uppi.
Börnin stóðu sig öll með sóma á námskeiðinu og fengu í lokin viðurkenningarskjal þar sem þau voru útnefnd „Grettis-víkingar“ með kunnáttu til að klæðast víkingabúningum og -skarti, skjóta af boga og skylmast með trésverði og fara í víkingaleiki og taka þátt í öðrum víkingaathöfnum.
Feykir hafði samband við Dagbjörtu Harðardóttur, sem sér um sveitamarkaðinn hjá Grettistaki í sumar og kemur að skipulagningu námskeiðanna. „Þátttakan er búin að vera rosalega góð,“ sagði hún. „Það eru níu börn núna og síðan verður eitt námskeið í næstu viku, eitt í vikunni fyrir Grettishátíð og eitt í ágúst.“
Meðal viðfangsefna barnanna á námskeiðunum er að búa til kjötsúpu, vinna kastband, fara í víkingaleiki, skylmast, tálga og að sauma leðurskjóður með steinum og letra á steinana rúnir. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Pétur Jónsson, Pálína Skúladóttir og Tanja Ennigarð, sem er starfsmaður á útisvæði Grettisbóls.