Víkinganámskeið fyrir börn 6-13 ára
Grettistak í Húnaþingi vestra hefur ákveðið að bjóða aftur upp á víkinganámskeið fyrir börn en haldið var samskonar námskeið sl. sumar. Um er að ræða tveggja daga námskeið fyrir börn á aldrinum 6-13 ára sem haldin verða í Grettisbóli á Laugarbakka í Miðfirði, í Húnaþingi vestra.
Samkvæmt heimasíðu Grettistaks verður saga Grettis sterka rifjuð upp á námskeiðunum, farið í fjölbreytta víkingaleiki, spilað kubbspil og skotið af boga og skylmst með sverðum. Börnin vinna víkingahandverk, smíða víkingavopn og elda mat að hætti víkinga. Börnin fá lánuð víkingaklæði meðan á námskeiðunum stendur.
Námskeiðin eru haldin á þriðjudögum og miðvikudögum og standa frá kl. 12:00 – 17:00. Börnunum er skipt upp í tvo aldurshópa, 6-10 ára og 10-12 ára.
Stefnt er á að halda námskeiðin eftirfarandi daga ef lágmarksþátttaka næst
8-9. júlí fyrir 6-10 ára
15-16. júlí fyrir 10-13 ára
22-23. júlí fyrir 6-10 ára
29-30. júlí fyrir 10-13 ára
5-6. ágúst fyrir 6-10 ára
Verð fyrir barn á námskeið er 5.000 krónur. Innifalið í verðinu er hádegisverður og nónhressing. 50% systkina afsláttur er veittur. Skráning og nánari upplýsingar eru á netfangið grettistakses@gmail.com og hjá Pétri í síma 891-7464.
„Tilvalið er fyrir þá krakka sem hafa áhuga á að fara á námskeiðið að senda foreldrana meðan á námskeiðinu stendur í skoðunarferðir um Húnaþing vestra. Héraðið er rómað fyrir fegurð og fjölmargt hægt að gera, svo sem fara í hestaferðir, selasiglingu og -skoðun, ganga um einstaka náttúru eða njóta þess að skoða það sem söfn, setur og gallerí svæðisins hafa upp á að bjóða. Möguleiki er að skrá börn á aðeins annan daginn,“ segir loks á vefnum.