Vilja brú á Norðlingafljót
Á Morgunblaðinu í dag er sagt frá því að Borgfirðingar og Vestur-Húnvetningar hyggist skora á Vegagerðina að brúa Norðlingafljót. Þannig yrði ferðamönnum greidd leið upp á Arnarvatnsheiði að sunnan. Var þetta meðal þess sem rætt var á sameiginlegum fundi sveitarstjórna Borgabyggðar og Húnaþings vestra sem fram fór í veiðihúsinu Álftakróki á Arnarvatnsheiði í ágúst sl.
Í viðtali við Morgunblaðið segir Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, að sveitarstjórnarmennirnir hafi verið sammála um að það yrði sett brú á Norðlingafljót. Fyrir er þokkalegur vegur að norðanverðu upp á heiðina en vegurinn að sunnanverðu er verri og Norðlingafljótið farartálmi á þeirri leið.
„Við teljum að með því að setja brú á Norðlingafljót séum við að opna fyrir aðgengi ferðamanna og veiðimanna upp á Arnarvatnsheiði. Við getum þannig fjölgað þeim sem nýta sér allt það sem heiðin býður upp á,“ sagði Páll í samtali við Morgunblaðið í dag.
Byggðaráð Borgarbyggðar og Byggðaráð Húnaþings vestra fjalla nú um málið. Páll reiknar með að ályktuninni um brú yfir Norðlingafljót yrði komið á framfæri við Vegagerðina síðar í þessum mánuði.