Vortónleikar Lillukórsins
Lillukórinn ætlar að halda vortónleika í Félagsheimilinu Hvammstanga þann 1. maí nk. kl. 14:00. Gestur kórsins verður Unnur Helga Möller sópransöngkona og mun hún flytja íslensk sönglög við undirleik Sigurðar Helga Oddssonar.
Kórstjóri er Ingibjörg Pálsdóttir og stjórnandi og undirleikari er Sigurður Helgi Oddsson. Aðgangseyrir er kr. 2.500 en frítt fyrir 14 ára og yngri. Enginn posi er á staðnum.
Í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónaukans segir að veitingar verða að hætti kórsins.