Fréttir

Nýtt fjölskylduherbergi á HVE Hvammstanga

Nýtt fjölskylduherbergi á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga var formlega tekið í notkun í vikunni. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá því í vor en herbergið á meðal annars að nýtast við lífslok. Frumkvæði að framkvæmdinni kom frá kvenfélögum á starfssvæði heilbrigðisstofnunarinnar og hafa þau lagt til það fjármagn sem þurfti til að koma þessu verkefni í framkvæmd.
Meira

Áhugaverður ferðamáladagur í Húnaveri

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Ferðamálafélögin í A-Hún., Húnaþingi vestra og Skagafirði standa fyrir Ferðamáladegi Norðurlands vestra 9. nóvember næstkomandi. Allir ferðaþjónustuaðilar og þeir sem hafa áhuga á samstarfi við greinina eru boðnir velkomnir að hlýða á áhugaverða fyrirlestra og taka þátt í að móta áhugaverð samstarfsverkefni.
Meira

16,7 kílóa meðalvigt hjá KS

Sláturtíð hjá Kjötafurðastöð KS lauk 28. okt síðastaliðinn en alls var slátrað rúmlega 107 þúsund fjár. Síðasta sauðfjárslátrun ársins verður svo þriðjudaginn 29. nóvember en þá verður slátrað sameiginlega fyrir Kjötafurðastöð KS og Sláturhús KVH, á Hvammstanga.
Meira

KK væntanlegur í fjörðinn

Næstkomandi laugardagskvöld mun hinn ástsæli tónlistarmaður Kristján Kristjánsson, eða KK, mæta með gítarinn sinn og halda tónleika í Ljósheimum í Skagafirði. Að sögn Þrastar Jónssonar, staðarhaldara Ljósheima, mun KK leika sín þekktu lög og krydda tónleikana með því að segja sögur inn á milli. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:30 en húsið opnar klukkustund fyrr.
Meira

Haukur Skúla þjálfar Stólana

Haukur Skúlason hefur verið ráðinn þjálfari m.fl. karla Tindastóls í fótbolta. Honum til aðstoðar í vetur verður Christopher Harrington og fyrir sumarið verður gengið frá ráðningu á öðrum þjálfara sem mun bætast í þetta þjálfarateymi.
Meira

Hamingjan í lífi og starfi

Fimmtudaginn 3. nóvember býður Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar upp á opinn fyrirlestur í Húsi Frítímans kl. 20:00. Fyrirlesari er Anna Lóa Ólafsdóttir, ráðgjafi, kennari og fyrirlesari sem heldur meðal annars úti síðunni Hamingjuhornið. Fyrirlesturinn snýst um það sem kemur okkur öllum við: hamingjuna.
Meira

Er styrkur í þér? Tveir sjóðir í boði

Nú um þessar mundir er að hefjast umsóknar- og úthlutunarferli vegna styrkveitinga Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra fyrir árið 2017. Einnig er að hefjast umsóknar- og úthlutunarferli í nýjan sjóð, Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Norðurlands vestra, fyrir árið 2017.
Meira

Oddný hættir sem formaður Samfylkingarinnar

Oddný G. Harðardóttir hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður Samfylkingarinnar þar sem niðurstaða nýliðinna kosninga var heldur minni fyrir flokkinn en vonir stóðu til. Logi Einarsson, varaformaður og nýkjörinn þingmaður Norðausturkjördæmis, tekur nú við stjórn flokksins.
Meira

Heitavatnslaust á Smáragrund

Búast við truflunum á rennsli heita vatnsins á Smáragrund á Sauðárkróki fram eftir degi í dag mánudaginn 31.10. vegna vinnu við heimæð. "Vonum að þetta valdi ekki miklum óþægindum," segir í tilkynningu frá Skagafjarðarveitum.
Meira

Ný Skagfirðingabók að koma út

Laugardaginn 5. nóvember verður fagnað útkomu nýrrar Skagfirðingabókar, númer 37 í töluröð, en þess jafnframt minnst að nú eru 50 ár síðan hún kom fyrst út. Á þessum tíma hefur bókin flutt rúmlega 380 greinar af skagfirsku efni á um það bil 7.400 blaðsíðum. Er þar saman kominn gríðarlega mikill fróðleikur úr sögu og mannlífi Skagafjarðar. Nýja bókin flytur 10 greinar af fjölbreyttu efni en höfuðgreinin er um Harald Júlíusson kaupmann og Guðrúnu Bjarnadóttur konu hans, skráð af Sölva Sveinssyni.
Meira