Unglingar komu eldri konu til hjálpar
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
14.04.2016
kl. 09.03
Í Morgunblaðinu í dag segir frá frækilegu björgunarafreki nokkurra unglinga á Skagaströnd er þeir björguðu lífi eldri konu er hún fékk hjartaáfall í göngutúr utan alfaraleiðar. Einn drengur í hópnum hóf hjartahnoð strax og hann áttaði sig á alvarleika málsins og hnoðaði í 17 mínútur þangað til sjúkrabíll kom á staðinn. „Með skjótum og réttum viðbrögðum tókst krökkunum í sameiningu að bjarga lífi konunnar,“ segir í fréttinni.
Meira
